Hæ hæ
Ég á afmæli í dag 5 ára jibbý. Ég hélt upp á það á laugardaginn síðasta, þá komu nokkrir vinir og fjölskyldumeðlimir í afmælið og ég fékk fullt af flottum afmælisgjöfum. Mamma gerði fyrir mig Sollu stirðu afmælisköku og hún var rosalega flott. Í dag er verið að halda upp á amælið mitt á leikskólanum og ég fékk líka Sollu stirðu köku með mér þangað.
Fyrir næstum 2 vikum síðan kom upp leiðindamál á heimilinu við mæðgurnar á heimilinu allar 3 vorum með lús, Eyrún hafði borið þetta heim úr skólanum og gefið okkur þetta sníkjudýr, það varð uppi fótur og fit á heimilinu, við vorum eitraðar og kemdar margoft, ég og mamma losnuðum strax við þetta en það var dáldið erfitt að láta Eyrúni losna við þetta, því hún var greinilega búin að vera með þetta í nokkra daga. Svo daginn sem að ég hélt upp á afmælið mitt með fjölskyldu og vinum þá stökk ég upp í sófa og æpti yfir hópinn " ÉG ER MEÐ LÚS " og allir færðu sig náttúrulega frá , ég var svo voðalega glöð með þennan ömurlega gest yakk, en lúsin var nú farin þá, þannig að það var nú engin hætta á ferðum.
Jólin komu og ég hélt ég myndi tapa mér yfir jólapökkunum, ég var alveg óð í pökkunum það var svo gaman og svo sá ég að einn pakkinn var merktur eitthvað með K og þá var ég á hreinu að það væri minn pakki og opnaði hann en það var Kristján frændi sem að átti pakkann, á aðfangadagsmorgunn bönkuðu nokkrir jólasveinar hjá okkur og gáfu mér og Eyrúni jólapakka og við fengum að opna þá strax oh það var svo gaman, í desember var ég allaf rosalega styllt og fékk aldrei kartöflu í skóinn, eins og einu sinni árið áður.
Kveðja Kristrún María afmælisbarn :)